Í STUTTU MÁLI

Ársskýrsla 2024

Í STUTTU MÁLI

Áfram var í mörg horn að líta hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Þúsundir mála komu á hennar borð, en heildarfjöldi allra mála skráður hjá embættinu var í kringum 70 þúsund. Þar af voru hegningarlagabrot 10 þúsund, umferðarlagabrot 20 þúsund og sérrefsilagabrot um 3.400. Sömu málaflokkarnir voru svo áberandi eins og jafnan áður. Ofbeldisbrot voru þar á meðal, en 1.400 líkamsárásir voru tilkynntar til embættisins. Það er ámóta fjöldi mála og árið á undan, en alvarlegum líkamsárásum fjölgaði þó lítillega á milli ára. Fjögur manndrápsmál voru til rannsóknar, en athygli vakti að í þremur málanna var barni ráðinn bani. Ekkert lát var á tilkynningum um heimilisofbeldi, en þær hafa verið nálægt 800 undanfarin ár. Á því varð ekki mikil breyting, en heimilisofbeldismálin í umdæminu árið 2024 töldust áfram vera 800 og rúmlega það. Þá voru um 100 nauðganir kærðar til embættisins, en þeim málum fækkar heldur ekki. Sveiflur í fjölda nauðgunarmála í umdæminu undanfarin ár hafa reyndar almennt verið litlar.

Skipulögð brotastarfsemi var líka fyrirferðarmikil þegar kom að rannsóknum mála hjá embættinu. Á hverju ári koma upp stór og umfangsmikil mál og á því varð engin breyting árið 2024. Þar voru fíkniefnamál áberandi, en einna mesta athygli vakti það sem kallað var Sólheimajökulsmálið, sem fékk nafnið af heiti spjallhóps brotamannanna. Það snéri að innflutningi kókaíns og amfetamíns, en fíkniefnin voru flutt til Íslands með skemmtiferðaskipi. Rannsókn málsins stóð yfir mánuðum saman og var mjög viðamikil. Framkvæmdar voru fjölmargar húsleitir á höfuðborgarsvæðinu og lagt hald á tugi milljóna í reiðufé, auk peningatalningavéla og skotvopna. Á þriðja tug manna voru handteknir í þágu rannsóknarinnar, sem lauk um mitt sumar, og sátu nokkrir þeirra í gæsluvarðhaldi vikum saman. Fjölmennar lögregluaðgerðir fyrri hluta ársins vöktu sömuleiðis athygli, en þær voru tilkomnar vegna rökstudds gruns um mansal, peningaþvætti, brot á atvinnuréttindum útlendinga og gruns um skipulagða brotastarfsemi. Umsvifamikill veitingamaður var talinn höfuðpaur í því máli, en önnur lögregluembætti og stofnanir tóku jafnframt þátt í aðgerðunum, bæði í umdæminu og utan þess. Sex voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna málsins. Fjársvikamál komu líka mjög við sögu enda skiptu þau hundruðum. Um er að ræða málaflokk sem fer stækkandi, en fjársvikum á netinu, sem eru mikið vandamál, má líkja við plágu. Þrátt fyrir stöðugar aðvaranir lögreglu féllu margir fyrir svikum óprúttinna aðila sem neyttu allra bragða til að villa um fyrir fólki. Svikararnir voru stöðugt að finna upp nýjar leiðir til að hafa fé af fólki, sem þurfti að vera stöðugt á varðbergi.

Næstum 4.500 þjófnaðarbrot voru tilkynnt til Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu árið 2024 og voru innbrot hátt í fjórðungur þeirra. Um var að ræða innbrot í verslanir og fyrirtæki, ökutæki og á heimili. Búðaþjófnaður var sömuleiðis áfram daglegt brauð og sinnti lögreglan slíkum útköllum árið um kring og er þá fátt eitt nefnt af þjófnaðarbrotum. Sem fyrr skiptu umferðarlagabrot í umdæminu þúsundum, en mest megnis voru það hraðakstursbrot. Nálægt 2.000 ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og/eða fíkniefnaakstur. Þrjú banaslys urðu í umferðinni á höfuðborgarsvæðinu árið 2024. Þau sem létust voru ökumaður fólksbíls á Reykjanesbraut í Hafnarfirði, ökumaður bifhjóls á Heiðmerkurvegi í Garðabæ og gangandi vegfarandi á Sæbraut í Reykjavík.