
Ekkert lát var á þjófnaðarbrotum á höfuðborgarsvæðinu árið 2024, en þau voru nálægt 4.500. Innbrot komu þar mjög við sögu enda hátt í fjórðungur brotanna. Innbrotum á heimili fjölgaði lítillega, en innbrotum í verslanir og fyrirtæki fjölgaði hins vegar meira frá fyrra ári. Hlutfallslega fjölgaði þó innbrotum í ökutæki mest frá árinu á undan. Brotin komu oft í bylgjum og svo var einnig þetta árið, en segja má að það hafi ekki farið vel af stað. Strax í ársbyrjun varaði embættið við innbrotsþjófum sem voru á kreiki í umdæminu í janúar, en þeir voru einkum á höttunum eftir skartgripum og peningum. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sendir reglulega frá sér slík varnaðarorð og hvetur jafnframt borgarana til að tilkynna um grunsamlegar mannaferðir. Það skilar iðulega góðum árangri og kemur lögreglumönnum ósjaldan á sporið.
Sem fyrr voru margir þjófanna ansi bíræfnir, líkt og þeir sem brutust inn í tvær verslanir í Kópavogi og Reykjavík eina helgina síðla í september. Miklum verðmætum var stolið og í hönd fór umfangsmikil rannsókn. Ráðist var í húsleitir og lagt var hald á ökutæki í þágu málsins, auk þess sem hluti af þýfinu kom í leitirnar. Rannsóknin teygði sig víða og framkvæmdar voru handtökur á höfuðborgarsvæðinu, Austfjörðum og á Keflavíkurflugvelli. Mest voru sjö í haldi lögreglu, allt erlendir ríkisborgarar, og sátu sex þeirra í gæsluvarðhaldi um tíma. Bíræfnir þjófar voru líka á ferðinni í Kópavogi seint í mars, en þeir stálu milljónum í reiðufé úr verðmætaflutningabifreið. Um var að ræða peninga úr spilakössum, en öryggisverðirnir voru grunlausir innandyra á meðan þjófarnir létu greipar sópa. Þeir óku síðan með góssið á brott á bifreið með stolnum skráningarnúmerum. Á litlu var að byggja við rannsókn málsins og henni miðaði lítt framan af. Slíkt er ekki óþekkt, enda snýst vinna lögreglu gjarnan um þolinmæði og þrautseigju. Það getur verið líkt og púsluspil eins og stundum er sagt. Að nokkrum vikum liðnum fór hringurinn að þrengjast og svo fór að karlmaður um fertugt var handtekinn vegna málsins og úrskurðaður í gæsluvarðhald. Hann játaði sök og var síðar dæmdur fyrir aðild sína að málinu. Karlmaður á svipuðum aldri var svo handtekinn seint á árinu, en sá stal bókstaflega öllu steini léttara. Hann var úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald, en maðurinn stal nokkur hundruð kílóum af kjötvörum, fatnaði og raftækjum svo eitthvað sé nefnt. Mikið af þýfinu fannst á dvalarstað hans og tók það dágóðan tíma að koma því aftur í réttar hendur.
Hér hafa aðeins fáein þjófnaðarmál verið nefnd til sögunnar enda voru innbrot og þjófnaðir, því miður, daglegt brauð í umdæminu. Hinir óprúttnu aðilar svífast einskis og beita öllum brögðum eins og áður hefur komið fram í ársskýrslum embættisins. Sú tíð er jafnframt löngu liðin að einungis sé við innlenda þjófa að eiga. Erlend þjófagengi koma til Íslands líkt og annarra landa og þar er um skipulagða brotastarfsemi að ræða. Hún er vaxandi vandamál sem þjóðir heimsins glíma við. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lætur ekki sitt eftir liggja í þeirri baráttu þar sem m.a. er lögð rík áhersla á mikilvægi afbrotavarna. Nefna má þátttöku embættisins í árlegu verkefni (Focus Day), sem að standa m.a. Evrópusambandið og Europol. Þar eru afbrotavarnir í brennidepli, en á þessum vettvangi er óspart bent á ýmis ráð til að draga úr líkum á innbrotum eða koma í veg fyrir þau. Iðulega er um að ræða hluti sem flestir, ef ekki allir, ættu að ráða við. Eins og að hafa traustar hurðalæsingar, útiljós með hreyfiskynjara, traustar gluggalæsingar og inniljós með tímastilli svo eitthvað sé nefnt.