Ársskýrsla 2024

STEFNA LÖGREGLUNNAR Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU 2024-2028

Snemma árs tilkynnti embættið um nýja stefnu þess, sem skyldi gilda frá 2024-2028. Sumt var óbreytt frá fyrri stefnum, en annað tók breytingum rétt eins og samfélagið sem Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu þjónar. Nýjar áskoranir hafa litið dagsins ljós og því var mikilvægt að staldra við og setja líka markmið með það í huga. Gildin voru þó áfram hin sömu, eða traust, öryggi og fagmennska. Og að vera til staðar fyrir öll – alltaf. Unnið var að nýrri stefnu um nokkurra mánaða skeið og var öllum starfsmönnum embættisins boðið að taka þátt. Það mæltist mjög vel fyrir enda voru þeir mjög samtaka um að lögreglan myndi gera enn betur en hingað til. Eftir marga vinnufundi varð til mjög metnaðarfull stefna, sem byggir á fjórum megin áherslum; Þekking og fagmennska, Í takt við samfélagið, Skilvirkni og stafrænar lausnir og Samstarf og samvinna.

Margt þarf að koma til svo stefnan gangi eftir og að markmiðum verði náð. Að hlusta og skynja þarfir samfélagsins er eitt og svo að bregðast við. Mikilvægi áfallamiðaðrar nálgunar verður seint ofmetið, en þar skiptir sköpum málshraði og gæði rannsókna. Að því hefur reyndar verið unnið um allnokkra hríð með töluverðum árangri, en hægt er að gera enn betur á því sviði sem öðrum. Nefna verður sömuleiðis nýsköpun og tækni. Hún hefur þegar haft mikil áhrif á störf lögreglunnar og svo verður áfram. Það er alveg öruggt. Þarna eru mörg tækifæri til að bæta starfsemina og embættið hefur þegar tekið skref í þá átt.

Um áskoranir og síbreytileg viðfangsefni sem Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stendur frammi fyrir má nefna alvarlegri ofbeldisbrot, aukinn vopnaburð og vöxt í netglæpum. Þar hafa mál þróast til verri vegar og mikilvægt að bregðast við af festu. Með tilkomu stækkandi fjölmenningarsamfélags á Íslandi þarf að huga að mismunandi leiðum til að nálgast ólíka hópa. Alþjóðavæðingu fylgir líka skipulögð brotastarfsemi og sömuleiðis verkefni tengd landamæravörslu. Af nógu er að taka þegar ný stefna er annars vegar og allt er það mikilvægt, ekki síst forvarnir og frumkvæðisvinna, sem embættið vill áfram leggja áherslu á. Þar undir eru m.a. samfélagslöggæsla, samstarf við skóla og félagsþjónustur og farsældarlög. Svo mætti lengi telja, en öllum þessum áskorunum fylgja jafnframt mikil tækifæri og þau ætlar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu að nýta sér til góðs.