Ársskýrsla Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu | EITT OG ANNAÐ

EITT OG ANNAÐ
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tekur þátt í alþjóðlegum lögregluaðgerðum á hverju ári og eru þær af ýmsum toga, m.a. sem varða misnotkun á íslenskum innviðum en ráðist var í nokkrar slíkar aðgerðir á árinu 2024. Ein þeirra snéri að því að taka niður fíkniefnamarkað, crimemarket.is, en skráðir notendur á þessum vef voru 180 þúsund og komu þýskir lögreglumenn til Íslands og tóku þátt í aðgerðunum. Starfsmenn bandarísku alríkislögreglunnar, FBI, komu sömuleiðis hingað vegna rannsóknar á svikastarfsemi með rafmynt og peningaþvætti. Í þágu hennar var tekin niður vefsíða sem var hýst hérlendis. Vefsíðan breachforums.is var sömuleiðis tekin niður, en hún var notuð til að selja stolin gögn úr innbrotum í tölvukerfi. Um var að ræða lögregluaðgerð sem var unnin í samvinnu sjö landa og stýrt af bandarísku alríkislögreglunni. Einnig voru teknir niður þrír vefþjónar hérlendis sem allir höfðu að geyma hryðjuverkaáróður. Fimm þjóðir tóku þá þátt í samræmdum aðgerðum með fulltingi Europol og Eurojust. Loks má nefna alþjóðlega lögregluaðgerð þar sem aflað var upplýsinga af vefþjónum, sem hýstu dulkóðaðan samskiptamiðil sem var notaður fyrir skipulagða brotastarfsemi. Vefþjónana var að finna bæði á Íslandi og í Frakklandi, en embætti ríkislögreglustjóra og ríkissaksóknara tóku sömuleiðis þátt í aðgerðunum sem náðu til níu landa.

Að venju var gerð könnun á viðhorfum íbúa í umdæminu til starfa og þjónustu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Um var að ræða netkönnun, framkvæmda af Gallup, og fór hún fram í júní og byrjun júlí. Boð um þátttöku fengu 2.907 íbúar, 18 ára og eldri, og svöruðu 1.469. Svarhlutfallið var því 50,5%, en  könnunin skiptist í nokkra liði, þ.e. spurt var um viðhorf almennt, ánægju með þjónustu lögreglu, öryggistilfinningu íbúa og áhyggjur af afbrotum. Einnig voru spurningar sem snéru að ákveðnum brotum og jafnframt hvort íbúar hefðu sent tilkynningar um tiltekin brot til lögreglu. Niðurstöður könnunarinnar þetta árið sýndu að viðhorf fólks til lögreglu er almennt gott. Um 71% sögðust bera traust til hennar og 74% töldu hana skila góðu starfi í sínu hverfi. Allar niðurstöður könnunarinnar er að finna á lögregluvefnum undir Útgáfa – Fræðilegar rannsóknir.

Um langt skeið hefur einn lögreglumaður hjá embættinu verið í fullu starfi við að leita að ungmennum í vanda. Á því er full þörf, því miður, en oftlega nýtur hinn sami aðstoðar fleiri lögreglumanna þegar svo ber undir. Leitarbeiðnir árið 2024 voru 274 og fjölgaði verulega á milli ára. Beiðnum fjölgaði einnig mikið frá 2022 til 2023 og því vert að hafa áhyggjur af þróun mála. Ósagt skal látið um ástæður þessa, en hér er um að ræða ungmenni yngri en 18 ára. Frá því verkefnið hófst 2014 hefur fjöldi leitarbeiðnanna aðeins einu sinni verið meiri, en það var árið 2018. Eins og áður dreifðust málin mjög yfir árið og voru tiltölulega fá fyrstu mánuðina. Þeim fjölgaði síðan á vormánuðum, en voru flest á tímabilinu frá ágúst til október þegar lögreglunni bárust samanlagt um 110 leitarbeiðnir á þriggja mánaða tímabili. Við sögu komu 82 unglingar og voru stúlkur í meirihluta, eða 48 á móti 34 piltum. Að sumum þeirra var leitað oftar en einu sinni. Sem fyrr varð mikil breyting milli ára á hópnum sem leitað var að, en langflestir unglinganna þetta árið höfðu ekki verið í þessum sporum áður. Hér skal jafnframt nefnt að ekki er lengur leitað með þessum hætti þegar viðkomandi nær 18 ára aldri. Þá telst viðkomandi fullorðinn og úrræðið á því ekki lengur við á þeim tímamótum.

LANDAMÆRADEILD
Verkefni Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hafa tekið ýmsum breytingum á umliðnum árum og hún hefur þurft að mæta mörgum áskorunum. Þar á meðal er landamæravarsla, en ferðalög og fólksflutningar hafa stóraukist á starfstíma embættisins. Tilkoma sérstakrar landamæradeildar var því í takt við þróunina, en starfsmenn hennar sátu ekki auðum höndum á árinu 2024. Þeir bjuggu jafnframt að dýrmætri reynslu frá árinu áður, sem var sömuleiðis mjög annasamt. Þetta árið voru fleiri á vakt hverju sinni og álagið því viðráðanlegra. Þar réði mestu um ráðning átján landamæravarða á vormánuðum. Í framhaldinu beið þeirra krefjandi námskeið og þjálfun, m.a. skilríkjafræðsla sem er undirstaða þess að starfa við landamæraeftirlit. Áðurnefndir landamæraverðir voru við störf á mesta álagstímanum yfir sumarmánuðina,  ásamt lögreglumönnum sem sinntu málaflokknum árið um kring.

Í ársbyrjun lá fyrir að verkefni landamæradeildar myndu enn aukast með komu fjölda skemmtiferðaskipa. Svo fór að skipin voru hátt í 300 og því fylgdi að stimpla þurfti vegabréf nálægt 75 þúsund farþega sem voru um borð. Fjöldi þessara stimplana tvöfaldaðist, eða svo, frá árinu á undan og munaði um minna. Þetta var að mestu leyti fyrirséð og við því var brugðist með fyrrnefndri fjölgun landamæravarða og veitti ekki af. Fjölgun skemmtiferðaskipa var tilkomin vegna þess að skipafélög fóru í auknum mæli að stunda farþegaskipti hérlendis og fleiri skip voru að koma eða fara til þriðja ríkis. Svokallað Entry Exit kerfi var ekki komið til framkvæmda á Íslandi og því þurfti að skoða vegabréf þriðja ríkis borgara og stimpla þau ýmist inn á Schengen-svæðið eða út af því.

Við eftirlitið var notaður sérstakur landamærabíll embættisins, en jafnframt var farið um borð í skipin þegar svo bar undir. Aðstaða á hafnarsvæðum í umdæminu til landamæraeftirlits er annars fábrotin, en vilji er til þess að bæta úr. Landamærabíllinn er hins vegar vel búinn, en ef veðrið var leiðinlegt var oft farið um borð í skipin til að sinna eftirlitinu. Þetta átti aðallega við um minni skipin þar sem farþegar voru allt að 1.000. Í allnokkur skipti sigldu landamæraverðir/lögreglumenn með stóru skemmtiferðaskipunum í tvo sólarhringa, þ.e. frá Akureyri til Reykjavíkur með viðkomu á Ísafirði og sinntu þá landamæraeftirlitinu á meðan siglunni stóð, en um borð voru þá 2.000 – 3.500 farþegar.

Með styrkingu landamæradeildar var enn fremur kleift að sinna öðrum verkefnum, sem höfðu því miður setið aðeins á hakanum. Þar má helst nefna eftirlit með flutningaskipum, en við svokallaða Schengen úttekt voru gerðar athugasemdir þar að lútandi. Gott var að bæta þar úr, en við eftirlitið naut embættið mjög góðrar samvinnu við Tollinn. Með í för voru tollverðir með fíkniefnaleitarhunda, en samstarf á þessu sviði sem öðrum er ávallt mikilvægt.

UMFERÐAREFTIRLIT
Umferðin á höfuðborgarsvæðinu gekk sinn vanagang árið 2024. Hún var þó ekki áfallalaus frekar en áður, en þrír létust í umferðarslysum. Í lok janúar varð árekstur fólksbifreiðar og flutningabifreiðar á Reykjanesbraut í Hafnarfirði, á móts við Álverið. Þeim var ekið úr gagnstæðum áttum, en annar ökumannanna lést. Sá var karlmaður á fertugsaldri. Rúmlega mánuði síðar, í byrjun mars, lést karlmaður um tvítugt í umferðarslysi í Garðabæ. Hann ók bifhjóli á Heiðmerkurvegi og virðist hafa misst stjórn á hjólinu sem hafnaði utan vegar. Og undir lok september lést kona á fertugsaldri, sem var fótgangandi á leið yfir Sæbraut í Reykjavík, við gatnamót Súðarvogs, þegar hún varð fyrir bifreið sem var ekið norður götuna. Lokað var fyrir umferð um vettvanginn á Sæbraut meðan unnið var að rannsókn málsins, eins og venjan er, en það mætti litlum skilningi annarra vegfarenda. Lögreglumenn eru ýmsu vanir við slíkar aðstæður, en þarna keyrði alveg um þverbak. Í fréttatilkynningu embættisins um banaslysið var vikið að þessu og fólk beðið um að taka það til sérstakrar umhugsunar. Sem fyrr urðu fjölmörg umferðarslys í umdæminu, en um þau var fjallað í vikulegum samantektum sem birtust á lögregluvefnum.

Sem fyrr var sérstakur myndavélabíll embættisins víða á ferðinni, ekki síst þar sem börn og unglingar voru á ferðinni. Notkun bílsins hefur gefið mjög góða raun, en hægt er að nálgast hraðamælingar hans á lögregluvefnum mörg ár aftur í tímann. Þúsundir ökumanna hafa fengið sekt fyrir að aka of hratt þar sem myndavélabílinn hefur verið við mælingar og svo var einnig þetta árið. Brotahlutfallið var oftar en ekki misjafnt eftir götum, en stundum óku allir ökumenn á löglegum hraða og það voru ekki síður ánægjulegar fréttir. Ökumenn í annarlegu ástandi komu áfram mikið við sögu. Nálægt 900 voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu árið 2024 og enn fleiri fyrir fíkniefnaakstur, eða rúmlega 1.000. Fjölmargir ökumenn voru sömuleiðis á ferðinni þrátt fyrir að hafa verið sviptir ökuleyfi, en lögreglan stöðvaði för hátt í 800 slíkra. Til viðbótar voru höfð afskipti af hátt í 400 ökumönnum sem höfðu aldrei öðlast ökuréttindi og var þeim vitaskuld gert að hætta akstri.

Viðurlög við umferðarlagabrotum hafa hækkað og sektirnir eru slíkar að þær ættu að koma við pyngju fólks, allavega flestra. Fjöldi brota í málaflokknum undanfarin misseri bendir þó ekki endilega til þess. Nærtækast er líta til þeirra ökumanna sem voru staðnir að því í umferðinni að tala í síma án handfrjáls búnaðar. Árlega skipta þeir hundruðum og á því varð engin breyting á höfuðborgarsvæðinu árið 2024. Þá voru um 650 ökumenn teknir fyrir slíkar sakir og fjölgaði þeim lítillega á milli ára. Sektin fyrir brotið var margfölduð fyrir nokkrum árum, en því miður hefur það ekki dugað til. Öllum ætti að vera ljós hættan sem fylgir svoleiðis hegðun í umferðinni enda má rekja mörg slys til hennar. Sama gildir um önnur umferðarlagabrot sem hér hafa verið nefnd og á sömuleiðis við um að aka gegn rauðu ljósi. Það er daglegt brauð, en hátt í 700 ökumenn urðu uppvísir að því árið 2024 og stundum með þeim alvarlegu afleiðingum að árekstur varð og vegfarendur slösuðust.

Að venju voru víða framkvæmdir á höfuðborgarsvæðinu. Áhrif þeirra á umferðina voru þó ekki meiri en venjulega. Að endingu má geta þess að ný reglugerð um umferðarmerki tók gildi á árinu. Teknir voru upp nýir flokkar, forgangsmerki og sérreglumerki og ýmsir aðrir flokkar voru sameinaðir. Nýja kerfið byggði á númerum, en ekki bókstöfum eins og áður var.

SKIPULÖGÐ BROTASTARFSEMI
Baráttan gegn skipulagðri brotastarfsemi hélt áfram af fullum krafti árið 2024. Þess konar brotastarfsemi teygir anga sína víða um heim og þar er Ísland ekki undanskilið. Í Evrópu hefur mátt merkja aukna samvinnu glæpahópa og því er samstarf við erlend lögreglulið afar mikilvægt. Brotamenn ferðast á milli landa, hafa líka viðkomu á Íslandi og aðhafast ýmislegt misjafnt. Fíkniefnamál eru þar jafnan veigamikil, en þar koma vitaskuld íslenskir brotamenn einnig mjög við sögu. Svo var t.d. í einu stærsta máli ársins af þeim toga, en þá voru margir handteknir í mjög umfangsmiklu máli á fyrrihluta ársins. Það gekk undir heitinu Sólheimajökulsmálið og snéri að skipulagðri brotastarfsemi, innflutningi og sölu og dreifingu fíkniefna hér á landi, peningaþvætti og vopnalagabrotum. Við rannsóknina var m.a. lagt hald á samtals rúmlega sex kíló af kókaíni og amfetamíni, lyf, stera og um 40 milljónir í reiðufé, auk nokkurra peningatalningavéla. Enn fremur haldlagði Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu ýmsar gerðir af skotvopnum, m.a. skammbyssu búna hljóðdeyfi. Á þriðja tug manna voru handteknir í tengslum við málið og framkvæmdar voru rúmlega þrjátíu húsleitir vegna þessa. Flestir sakborninganna voru handteknir í aðgerðum lögreglu um miðjan apríl, en þá stóð brotahópurinn fyrir komu tveggja manna sem fluttu fíkniefni til landsins með skemmtiferðaskipi. Í kjölfarið voru fimm aðilar úrskurðaðir í gæsluvarðhald, en við rannsóknina naut embættið aðstoðar annarra lögregluliða, auk Tollsins og Landhelgisgæslunnar.

Á haustmánuðum var lagt hald á tæplega sex kíló af kristal metamfetamíni í viðmiklum aðgerðum lögreglu og var fimm manns gert að sæta gæsluvarðhaldi í þágu rannsóknarinnar. Framkvæmdar voru nokkrar húsleitir í umdæminu vegna málsins, en um var að ræða stærstu haldlagningu á kristal metamfetamíni í einu máli hérlendis. Það fannst í bifreið, sem var flutt sjóleiðis til landsins. Rannsóknin snéri að stórfelldu fíkniefnabroti og skipulagðri brotastarfsemi, en við hana naut Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu aðstoðar Tollsins, embættis héraðssaksóknara og sérsveitar ríkislögreglustjóra. Nokkrum vikum fyrr var til rannsóknar innflutningur á rúmlega kílói af kókaíni, sem kom hingað til lands með póstsendingu. Og fyrir páska var reynt að flytja inn tæplega sjö lítra af amfetamínbasa í tveimur sendingum. Tollurinn stöðvaði sendinguna og Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tók síðan við málinu og sátu fjórir í gæsluvarðhaldi í þágu rannsóknarinnar.

Fáar aðgerðir Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu fengu þó jafnmikla athygli og þær sem ráðist var í snemma í mars, en undirbúningur þeirra stóð yfir í dágóðan tíma. Þá lá fyrir rökstuddur grunur um mansal, peningaþvætti, brot á atvinnuréttindum útlendinga og grunur um skipulagða brotastarfsemi. Þekktur athafnamaður var talinn höfuðpaur í málinu og var hann handtekinn ásamt sjö öðrum. Aðgerðirnar stóðu yfir frá morgni og langt fram á kvöld og voru viðamiklar, en ráðist var í tuttugu og fimm húsleitir á höfuðborgarsvæðinu og víðar. Á annað hundrað manns frá ýmsum stofnunum og embættum tóku þátt í þeim, þar af um áttatíu starfsmenn lögreglu. Athafnamaðurinn, sem var einkum kunnur fyrir rekstur veitingastaða, var úrskurðaður í gæsluvarðhald ásamt fimm öðrum. Aðgerðirnar þóttust takast mjög vel, en að þeim loknum tók við mjög umfangsmikil og tímafrek rannsókn. Í hópi málsaðila voru margir erlendir ríkisborgarar og voru grunsemdir um að hluti þeirri væri þolendur mansals. Því var um að ræða fólk í erfiðri stöðu og var rannsóknin viðkvæm eftir því.

KYNFERÐISBROT/VÆNDI
Undanfarin ár hafa að jafnaði um 100 tilkynningar um nauðganir borist Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu á hverju ári. Á því varð ekki breyting árið 2024, málafjöldinn á milli ára stóð nánast í stað. Áfram voru því um 100 nauðganir til rannsóknar hjá embættinu. Árið 2022 var þó undantekning, en þá voru um 150 nauðganir tilkynntar á höfuðborgarsvæðinu. Að öðru leyti eru litlar sveiflar hvað varðar málafjölda síðustu árin. Að ekki hafi dregið úr nauðgunum eru vonbrigði, en áfram verður að stefna að því marki. Ýmislegt hefur samt verið gert í málaflokknum, ekki síst er lýtur að brotaþolum. Árið 2023 var t.d. komið á fót nýrri þriggja ára aðgerðaáætlun stjórnvalda, en með henni var málshraði kynferðisbrota í rannsókn aukinn. Það var vitaskuld til mikilla bóta. Eins og gefur að skilja er hér um viðkvæm mál að ræða og upplýsingar frá lögreglu um þau sömu mál jafnan litlar. Skilningur almennings á rannsóknum þeirra og gangi er því takmarkaður sem því nemur. Á árinu varð hins vegar breyting á því að einhverju leyti, en þá fóru í loftið nokkrir hlaðvarpsþættir, Á vettvangi, þar sem sjónum var beint sérstaklega að starfi kynferðisbrotadeildarinnar. Þættirnir vöktu athygli og hlustunin var eftir því og kom ekki á óvart. Áhugi á störfum lögreglunnar og verkefnum hennar hefur lengi verið til staðar. Með þessu jókst skilningur á rannsóknum í málaflokknum og það var af hinu góða.

Þótt vart verði sagt að kynferðisbrotamál hafi tekið breytingum í áranna rás hefur tækniþróunin leitt til mála, sem áður voru eðlilega óþekkt á borði lögreglu. Hér er vísað til þess sem á sér stað í hinum rafræna heimi og það er ekki allt fallegt, síður en svo. Þar á meðal var svokölluð sæmdarkúgun (sextortions), en embættið hafði slík mál til rannsóknar. Þolendur voru gjarnan ungir karlar, jafnvel á grunnskólaaldri, sem voru ginntir til að senda af sér kynferðislegar myndir í gegnum samfélagsmiðla, einkum Instagram og Snapchat. Viðtakandinn reyndist síðan ekki vera sá sem hann sagðist vera og krafðist peninga, ella yrði myndunum dreift áfram til annarra. Um var að ræða skipulagða brotastarfsemi og full ástæða var til að hafa varann á sér. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vakti athygli á þessu og hvatti foreldra og forráðamenn til að ræða við börnin sín um hætturnar sem geta fylgt notkun samfélagsmiðla.

Netið geymir líka auglýsingar um vændi og af þeim var jafnan meira en nóg. Embættið vildi gjarnan gera betur þegar vændi er annars vegar, en gefur því alltaf gaum og reglulega koma upp mál af því taginu. Um mitt sumar var svo lagt vel í þegar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu, í samvinnu við fleiri lögregluembætti hérlendis, tók þátt í alþjóðlegum aðgerðadögum Europol þar sem sjónum var beint að mansali og vændi. Þá var á einni viku farið í nálægt 100 eftirlitsferðir á staði þar sem vændi, betl og önnur brotastarfsemi var talin þrífast. Afskipti voru höfð af rúmlega 200 manns, bæði á höfuðborgarsvæðinu og landamærum, og  hluta þeirra síðan boðin aðstoð. Aðeins einn úr þeim allstóra hópi sem taldist til þolenda þáði aðstoðina sem fólkinu stóð til boða. Að endingu má þess geta að eftir aðgerðadagana hóf embættið rannsókn á þremur nýjum málum þessu tengdu.

FJÁRSVIK/NETGLÆPIR
Svikahrappar héldu uppteknum hætti árið 2024 og fjársvikamálin voru eftir því, en þau skiptu hundruðum. Þar var gjarnan um kunnuglegan tón að ræða, t.d. svikasímtöl og því brýnt að svara þeim ekki. Um tíma var m.a. hringt í íslensk símanúmer úr númerum sem voru skráð í Lúxemborg eða á Sri Lanka. Tilgangurinn með símtölunum var að komst yfir fjármuni þess sem hringt var í. Vegna þessa var fólk hvatt til að svara ekki símtölum frá erlendum númerum sem það kannaðist ekki við. Líkja mátti þessu við herferð, en á öðrum tíma ársins létu brotamennirnir enn fremur líta svo út sem hringt væru úr íslenskum símanúmerum. Þá talaði hringjandinn gjarnan ensku og þóttist vera að upplýsa um inneign sem viðtakandinn átti að eiga. Sá sem hringdi bauðst jafnframt góðfúslega til að aðstoða við að leysa fjármunina út. Stundum var reynt að fá aðgang að tölvum fólks undir yfirskini þess að í þeim væri um bilun að ræða og þóttust hringjendur þá iðulega vera á vegum fyrirtækisins Microsoft, en það er ein af velþekktum leiðum hinna óprúttnu aðila. Svikasímtöl af þessu tagi voru mjög algeng, en besta leiðin til að bregðast við þeim var einfaldlega að slíta strax símtalinu.

Fjölmörg netbrotamál voru annars kærð til Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu árið 2024 og tilkynningar þar um voru enn fleiri. Á bak við brotin voru skipulagðir brotahópar og því alls engin skömm að verða fyrir slíku. Við rannsóknir málanna varð embættið hins vegar vart við að sumt fólk veigraði sér við að tilkynna brot, sem er auðvitað miður. Þetta átti t.d. við þegar brotamenn tóku yfir Facebook Messenger aðganga fólks og sendu grunlausum vinum þeirra upplýsingar um leik þar sem átti að vera hægt að vinna peninga. Í framhaldinu var fólk beðið um að gefa upp símanúmerin sín og samþykkja svo innskráningu með rafrænum skilríkjum. Við það komust þrjótarnir inn á heimabanka einhverra og náðu að framkvæma millifærslur þaðan. Af einhverjum ástæðum reyndust þessi brot algengari um helgar en á virkum dögum og lögreglan varaði við því sérstaklega þegar athygli var vakin á málunum.

Sending svikapósta var áfram linnulaus, en m.a. var reynt að senda þá út nafni ríkislögreglustjóra! Varað var eindregið við slíkum svikapóstum sem öðrum og ítrekað að fólk opnaði ekki hlekki eða viðhengi sem þeim fylgdu. Og undirstrikað var að skoða öll skilaboð og pósta með gagnrýnum augum, auk þess að gefa alls ekki upp kortaupplýsingar eða aðrar viðkvæmar persónuupplýsingar. Þetta skilaði vafalaust þeim árangri að færri en ella létu blekkjast. Kalla má þetta ákveðið forvarnarstarf, sem er einhlítt að verður framhaldið í ljósi  þróunarinnar sem hefur átt sér stað í málaflokknum. Hér þarf stöðugt að vera á varðbergi enda sífellt reynt að gera svikin trúverðugri ef svo má segja. Eitt merki um það er málfarið, en í svikapóstunum voru málfarsvillur ekki alltaf jafn áberandi eins og stundum áður.

Fjársvikamálin á árinu 2024 voru svo mörg og mismunandi að vart er hægt að segja að eitt hafi vakið meiri athygli en annað. Þegar farið var að nota myndir af þekktum Íslendingum til að blekkja fólk fékk það hins vegar mikla athygli og varð eftirminnilegt fyrir vikið. Málið byrjaði með auglýsingum á Facebook, en allt snérist það um svikamyllu fjárfestinga sem var einvörðungu sett á fót til að stela peningum af fólki. Umfangið benti til þess að baki hefði verið vel skipulagður hópur brotamanna. Frá auglýsingunum var hlekkur inn á vefsíðu sem virtist vera mjög kunn íslensk fréttasíða. Flestir sáu hins vegar við þessu. Svo mætti áfram telja, en þess utan voru á þriðja tug fjárdráttarmála til rannsóknar hjá embættinu.

INNBROT OG ÞJÓFNAÐIR
Ekkert lát var á þjófnaðarbrotum á höfuðborgarsvæðinu árið 2024, en þau voru nálægt 4.500. Innbrot komu þar mjög við sögu enda hátt í fjórðungur brotanna. Innbrotum á heimili fjölgaði lítillega, en innbrotum í verslanir og fyrirtæki fjölgaði hins vegar meira frá fyrra ári. Hlutfallslega fjölgaði þó innbrotum í ökutæki mest frá árinu á undan. Brotin komu oft í bylgjum og svo var einnig þetta árið, en segja má að það hafi ekki farið vel af stað. Strax í ársbyrjun varaði embættið við innbrotsþjófum sem voru á kreiki í umdæminu í janúar, en þeir voru einkum á höttunum eftir skartgripum og peningum. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sendir reglulega frá sér slík varnaðarorð og hvetur jafnframt borgarana til að tilkynna um grunsamlegar mannaferðir. Það skilar iðulega góðum árangri og kemur lögreglumönnum ósjaldan á sporið.

Sem fyrr voru margir þjófanna ansi bíræfnir, líkt og þeir sem brutust inn í tvær verslanir í Kópavogi og Reykjavík eina helgina síðla í september. Miklum verðmætum var stolið og í hönd fór umfangsmikil rannsókn. Ráðist var í húsleitir og lagt var hald á ökutæki í þágu málsins, auk þess sem hluti af þýfinu kom í leitirnar. Rannsóknin teygði sig víða og framkvæmdar voru handtökur á höfuðborgarsvæðinu, Austfjörðum og á Keflavíkurflugvelli. Mest voru sjö í haldi lögreglu, allt erlendir ríkisborgarar, og sátu sex þeirra í gæsluvarðhaldi um tíma. Bíræfnir þjófar voru líka á ferðinni í Kópavogi seint í mars, en þeir stálu milljónum í reiðufé úr verðmætaflutningabifreið. Um var að ræða peninga úr spilakössum, en öryggisverðirnir voru grunlausir innandyra á meðan þjófarnir létu greipar sópa. Þeir óku síðan  með góssið á brott á bifreið með stolnum skráningarnúmerum. Á litlu var að byggja við rannsókn málsins og henni miðaði lítt framan af. Slíkt er ekki óþekkt, enda snýst vinna lögreglu gjarnan um þolinmæði og þrautseigju. Það getur verið líkt og púsluspil eins og stundum er sagt. Að nokkrum vikum liðnum fór hringurinn að þrengjast og svo fór að karlmaður um fertugt var handtekinn vegna málsins og úrskurðaður í gæsluvarðhald. Hann játaði sök og var síðar dæmdur fyrir aðild sína að málinu. Karlmaður á svipuðum aldri var svo handtekinn seint á árinu, en sá stal bókstaflega öllu steini léttara. Hann var úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald, en maðurinn stal nokkur hundruð kílóum af kjötvörum, fatnaði og raftækjum svo eitthvað sé nefnt. Mikið af þýfinu fannst á dvalarstað hans og tók það dágóðan tíma að koma því aftur í réttar hendur.

Hér hafa aðeins fáein þjófnaðarmál verið nefnd til sögunnar enda voru innbrot og þjófnaðir, því miður, daglegt brauð í umdæminu. Hinir óprúttnu aðilar svífast einskis og beita öllum brögðum eins og áður hefur komið fram í ársskýrslum embættisins. Sú tíð er jafnframt löngu liðin að einungis sé við innlenda þjófa að eiga. Erlend þjófagengi koma til Íslands líkt og annarra landa og þar er um skipulagða brotastarfsemi að ræða. Hún er vaxandi vandamál sem  þjóðir heimsins glíma við. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lætur ekki sitt eftir liggja í þeirri baráttu þar sem m.a. er lögð rík áhersla á mikilvægi afbrotavarna. Nefna má þátttöku embættisins í árlegu verkefni (Focus Day), sem að standa m.a. Evrópusambandið og Europol. Þar eru afbrotavarnir í brennidepli, en á þessum vettvangi er óspart bent á ýmis ráð til að draga úr líkum á innbrotum eða koma í veg fyrir þau. Iðulega er um að ræða hluti sem flestir, ef ekki allir, ættu að ráða við. Eins og að hafa traustar hurðalæsingar, útiljós með hreyfiskynjara, traustar gluggalæsingar og inniljós með tímastilli svo eitthvað sé nefnt.

MANNDRÁP OG LÍKAMSÁRÁSIR
Sveiflur hafa verið í fjölda manndrápsmála í umdæminu á starfstíma Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu frá árinu 2007, en annað árið í röð voru fjögur slík mál til rannsóknar hjá embættinu. Þetta er ekki góð þróun þótt varlega beri að fara með slíka tölfræði enda þarfnast hún sérstakrar rýningar við. Framhjá því verður samt ekki litið að fimm árin þar á undan voru framin samtals þrjú morð á höfuðborgarsvæðinu og því má telja óvenjulegt að embættið rannsakaði fjögur manndrápsmál árið 2023 og aftur sama fjölda árið 2024. Það er meira en við eigum að venjast. Í þremur málanna á árinu 2024 var barni ráðinn bani, sem er sérstaklega óhugnanlegt, og var foreldri gerandi í tveimur tilvikum. Í fjórða manndrápsmálinu, þar sem kona á sjötugsaldri var myrt, var einnig um náin fjölskyldutengsl að ræða. Banamaðurinn var sonur  hinnar látnu.

Snemma árs var lögreglan kölluð að heimahúsi í austurbæ Kópavogs, en þar fannst látinn 6 ára drengur. Móðir hans var handtekin á vettvangi, grunuð um að hafa orðið syni sínum að bana. Á heimilinu var einnig eldri sonur hennar, en honum tókst að komast undan þegar móðirin ætlaði líka að vinna honum mein. Konan var síðar dæmd í 18 ára fangelsi fyrir verknaðina, en fjölskyldan var af erlendu bergi brotin og hafði verið búsett á Íslandi í nokkur ár. Rúmlega hálfu ári síðar, á Menningarnótt í Reykjavík, voru þrjú ungmenni stungin með hnífi í miðborginni. Fjölmenni var á vettvangi enda flugeldasýningin nýafstaðin þegar þetta átti sér stað. Árásarmaðurinn reyndist vera 16 ára piltur og voru brotaþolarnir á svipuðu reki.  17 ára stúlka fór verst út úr árásinni og slasaðist lífshættulega. Henni var haldið sofandi á Landspítalanum næstu daga á eftir, en því miður fór það svo að stúlkan lést af sárum sínum tæpri viku eftir árásina. Málið vakti gríðarlega athygli og þjóðin var slegin. Um nokkurt skeið höfðu verið áhyggjur af auknum vopnaburði ungra karlmanna og nú hafði allt farið á versta veg. Hvernig gat þetta gerst spurðu margir, en engin augljós svör var að finna. Og rétt þegar haustið var að taka við, um miðjan september, var barni aftur ráðinn bani. Að þessu sinni var vettvangur ódæðisins í Hafnarfirði, eða í hrauninu gegnt Vatnsskarðsnámu við Krýsuvíkurveg. Þá hringdi karlmaður á fimmtugsaldri í Neyðarlínuna og var í fyrstu óljós um bæði atvik og staðsetningu. Þegar skýrari mynd fékkst af málinu voru viðbragðsaðilar strax sendir á vettvang. Maðurinn var handtekinn við komuna þangað, en á sama tíma var leitað að dóttur hans. Hún fannst skammt frá, en var látin er að var komið. Stúlkan var 10 ára, en banamaðurinn var faðir hennar, sem fyrr var getið. Loks er að geta manndráps síðla í október, en þá var konu á sjötugsaldri ráðinn bani í íbúð fjölbýlishúss í Breiðholti. Banamaðurinn var sonur konunnar, en hann var  handtekinn á vettvangi.

Fjölmörg önnur ofbeldisbrot voru til rannsóknar hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu árið 2024. Fjöldi brotanna hefur annars verið svipaður síðustu ár, eða samtals um 1.400, þ.e. bæði minni háttar og meiri háttar líkamsárásir. Síðarnefndu líkamsárásirnar eru þó ívið fleiri en árið á undan. Tilkynningar um þessi brot berast lögreglu jafnt og þétt yfir árið, rétt eins og tilkynningar um heimilisofbeldi. Að jafnaði hafa þær verið um 800 síðustu árin og fjöldi þeirra var ámóta árið 2024. Heimilisofbeldi er tekið mjög föstum tökum hjá embættinu, sem hefur um það mjög skýrt verklag. Vel hefur miðað að fá brotaþola til að stíga fram og má þakka það mikilvægri umræðu um málaflokkinn undanfarin ár. Enn er samt mikið verk að vinna því vandamálið er sannarlega enn til staðar eins og fjöldi tilkynninga er til vitnis um.

EITT OG ANNAÐ
Ekkert lát var á leitarbeiðnum að unglingum sem bárust Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu árið 2023. Samtals voru leitarbeiðnirnar um 220 og því óhætt að segja að margir unglingar í umdæminu voru í vanda. Enda fjölgaði beiðnum um nánast helming á milli ára, en þær voru um 150 árið á undan. Sveiflur í málaflokknum eru þó þekktar og áður hafa sést hærri/verri tölur. Leitað var að um 70 unglingum þetta árið og sumum oftar en einu sinni. Að stærstum hluta þeirra, eða um 50, hafði lögreglan ekki leitað að áður. Skýringin lá í því að í hópnum verður árlega ákveðin endurnýjun. Nýir bættust í hópinn, einhverjir komust aftur á beinu brautina og ekki er lengur leitað þegar viðkomandi verður 18 ára. Leitarbeiðnir dreifðust mjög yfir árið, voru fæstar í ársbyrjun og höfðu síðan tvöfaldast um mitt sumar. Flestar voru þær þó á síðasta ársfjórðungi, eða hátt í 90. Þar var október sérstaklega slæmur, en þá bárust embættinu 37 leitarbeiðnir. Yfir árið bárust svo gott sem jafn margar beiðnir um leit að piltum sem stúlkum. Misjafnlega lengi tók að finna unglingana, en í örfáum tilvikum var auglýst eftir þeim í fjölmiðlum. Þetta var tíunda árið í röð sem einn lögreglumaður á höfuðborgarsvæðinu hafði það að aðalstarfi að leita að unglingum í vanda.

Árleg könnun á viðhorfum íbúa í umdæminu til starfa og þjónustu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu fór fram í júní. Framkvæmdin var í höndum Gallup, en um var að ræða netkönnun. Boð um þátttöku fengu 2.579 íbúar, 18 ára og eldri, og svöruðu 1.394. Svarhlutfallið var því 54,1%, sem má teljast viðunandi. Könnunin skiptist í nokkra liði, þ.e. spurt var um viðhorf almennt, ánægju með þjónustu lögreglu, öryggistilfinningu íbúa og áhyggjur af afbrotum. Einnig voru spurningar sem snéru að ákveðnum brotum og jafnframt hvort íbúar hefðu sent tilkynningar um tiltekin brot til lögreglu. Mikilvægi slíkra kannana verður seint ofmetið, en bæði veita niðurstöður þeirra upplýsingar um það sem vel er gert og sömuleiðis um það sem þarf að bæta. Niðurstöður könnunarinnar þetta árið sýndu að viðhorf fólks til lögreglu er almennt gott. Um 75% sögðust bera traust til hennar og 78% töldu hana skila góðu starfi í sínu hverfi. Greina mátti mismunandi svör eftir hópum. Þannig bar yngsti aldurshópurinn, 18-25 ára, mun minna traust til lögreglu í samanburði við hina eldri, en einvörðungu 55% þeirra svöruðu á þá vegu. Næstum fjórðungur allra svarenda, eða 23%, hafði orði fyrir einhvers konar afbroti og voru eignaskemmdir helst nefndar til sögunnar.  Niðurstöður könnunarinnar verða ekki raktar hér frekar, en þær má allar finna á lögregluvefnum undir Útgáfa -Fræðilegar rannsóknir.

Um mitt ár var lokað fyrir móttöku einkaskilaboða á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Eftir sem áður var hægt að senda embættinu ábendingar og/eða fyrirspurnir um hvaðeina með einföldum hætti. Og áfram var lögð mikil áhersla á að svara öllum erindum eins fljótt og unnt var. Minnt var á netfangið abending@lrh.is en tölvupóstum sem þangað bárust var svarað á skrifstofutíma alla virka daga. Til hægðarauka var jafnframt settur upp sérstakur hnappur á fésbókarsíðu embættisins – HAFÐU SAMBAND VIÐ OKKAR en ábendingar og fyrirspurnir fluttust beint þaðan til starfsmanna sem voru til svara á abending@lrh.is Við þetta tilefni var einnig minnt á upplýsingasíma lögreglu – 800 5005. Í  hann mátti hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um skipulagða brotastarfsemi, eða önnur brot sem fólk hafði vitneskju um.

SKOTÁRÁSIR
Aukinn vopnaburður hefur réttilega verið áhyggjuefni undanfarin ár. Sjónum hefur einkum verið beint að hnífaburði ungra karla og þeim hörmulegu afleiðingum sem honum getur fylgt. Ástæða er líka til að hafa áhyggjur af notkun skotvopna, en annað árið í röð voru nokkrar alvarlegar skotárásir til rannsóknar hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Skotárásir eru að sjálfsögðu alltaf alvarlegar, en þær hafa verið fátíðar hingað til. Fjöldi skráðra skotvopna er til í landinu og eigendur þeirra kunna almennt mjög vel með þau að fara, og gera það í fullu samræmi við lög og reglur sem um skotvopn gilda. Í þremur málum sem hér verða stuttlega rakin átti það augljóslega ekki við. Fyrst er nefndur tæplega þrítugur karlmaður sem hleypti af  afsagaðri haglabyssu á veitingastað í miðborginni eitt sunnudagskvöldið í mars. Byssunni beindi hann að nokkrum viðskiptavinum og starfsmanni, sem voru við barborð staðarins. Höglin höfnuðu í innréttingu og áfengisflöskum, sem splundruðust og rigndi glerbrotum yfir fólkið og mátti hrósa happi að ekki fór verr. Skotmaðurinn, sem var grímuklæddur, flúði af vettvangi, en var handtekinn daginn eftir. Byssan kom í leitirnar mjög fljótlega, en hún reyndist stolin.  Maðurinn hafði fleiri alvarleg brot á samviskunni, en fyrir þau og skotárásina var hann í Héraðsdómi Reykjavíkur dæmdur í átta ára fangelsi.

Ekki var hættan minni þegar karlmaður um tvítugt skaut nokkrum skotum að fjórum ungum mönnum utan við fjölbýlishús í Úlfarsárdal í Reykjavík í byrjun nóvember. Árásin var gerð að næturlagi þegar íbúar voru í fastasvefni, en skotmaðurinn kom akandi á vettvang og fór þaðan um leið og hún var afstaðin. Ringulreið var á staðnum þegar lögreglan kom og óljóst var hvar árásin átti sér stað. Fljótt fékkst þó skýrari mynd af málinu, en einn mannanna hafði orðið fyrir skoti og var hann fluttur á slysadeild. Sem betur fer voru áverkar hans ekki lífshættulegir, en maðurinn særðist á fæti. Tilviljun réði hvar skotin höfnuðu, en þau lentu enn fremur í bifreið á vettvangi og í nærliggjandi húsi þar sem fjögurra manna fjölskylda svaf værum svefni. Mikill viðbúnaður var vegna skotárásarinnar, en degi eftir hana voru sex úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Grunur var um að tilefni skotárásarinnar hafi verið einhvers konar uppgjör tveggja  hópa.

Og á aðfangsdagskvöld var lögreglan aftur kölluð til vegna skotárásar, að þessu sinni á Hvaleyrarholti í Hafnarfirði. Þar höfðu tveir grímuklæddir menn ruðst inn í íbúð fjölbýlishúss og annar þeirra hleypt af sex skotum úr skammbyssu. Fjórir voru á heimilinu þegar þetta átti sér stað, þar af 9 ára stúlka. Ummerki bentu til þess að skotmaðurinn hafi staðið á ganginum innan við forstofu íbúðarinnar og hleypt af skotum í átt að barnaherbergi. Dyr þess stóðu opnar, en tvö skotanna höfnuðu í vegg í því herbergi. Mikil mildi þykir að enginn slasaðist í íbúðinni, en árásarmennirnir voru fljótir að láta sig hverfa af vettvangi. Á þeim virðist hafa verið töluverður asi því skammbyssan fannst utan við fjölbýlishúsið um leið og lögreglan kom á staðinn. Í framhaldinu voru þrír menn handteknir, en einn þeirra var vitorðsmaður og hafði ekið hinum tveimur á vettvang. Eftir árásina fóru þeir í Krýsuvík og skiptu um skráningarnúmer á bifreiðinni, en hún var á röngum skráningarnúmerum til að hylja slóð þeirra. Skotmaðurinn, sem var um tvítugt, sagði að tilgangurinn með árásinni hafi verið að hræða einn heimilismannanna. Þremenningarnir voru allir í Héraðsdómi Reykjaness dæmdir til fangelsisvistar og fékk skotmaðurinn sjálfur þyngsta dóminn, eða 5 ár.